top of page

Listi Framtíðar Árneshrepps (Á)

Fjölbreyttur hópur af bændum og öðru hugsjónafólki sem vill berjast áfram fyrir tilvist heilsársbyggðar, landsfrægu sauðfjárræktinni, samgöngum, ferðaþjónustu og öðrum mikilvægum málefnum sem gera Árneshrepp að staðnum sem hann er.

Tryggjum heilsársbúsetu

Heilsársbúseta er forsenda byggðar í Árneshreppi. Það er mikilvægt að einstaklingar sem búa allt árið í hreppnum og eru að hugsa til framtíðar séu við stjórnvölinn þegar kemur að ákvörðunum fyrir framtíð samfélagsins næstu 10-20 ár.

IMG_4099.jpeg

Samgöngur og fjölgun íbúa lykilatriði fyrir framtíð byggðarinnar

Við leggjum sérstaka áherslu á samgöngumál og fjölgun íbúa sem tvö lykilatriði fyrir framtíð byggðarinnar. Að mati okkar eru bættar samgöngur stærsta hagsmunamál íbúa og forsenda þess að hægt sé að efla atvinnulíf, skapa fleiri störf og gera svæðið raunhæfan kost fyrir fleiri til búsetu.

Samgöngur yfir vetrarmánuðina gera það nánast ómögulegt að halda okkar blómstrandi ferðaþjónustu opinni allt árið sem dregur úr möguleikum á heilsársbúsetu.

“Við viljum að Árneshreppur hafi rödd áfram, sterka rödd sem stefnir fram veginn… en hann verður að vera fær”

Framboð til sveitarstjórnakosninga 2026

Árneshreppur er einstakt sveitarfélag þar sem mögnuð náttúra og sterkt samfélag fara saman. Þar býr fólk sem hefur valið að byggja líf sitt á svæðinu og vill áfram sjá byggðina blómstra.

bottom of page